15 nemendur brautskráðust frá FSHAlmennt - - Lestrar 676
Í gær brautskráði Framhalds-skólinn á Húsavík 15 nemendur við hátíðlega athöfn í Húsavíkurkirkju að viðstöddu fjölmenni.
Dóra Ármannsdóttir skólameistari bauð alla velkomna og óskaði útskriftarefnum og fjölskyldum þeirra til innilega hamingju með merkan áfanga. Þá sungu útskriftarnemarnir Jón Ásþór Sigurðarson og Kristín Kjartansdóttir ,,Okkar ár“ texta eftir fyrrverandi nemanda skólans Kristjönu Maríu Kristjánsdóttur við lag eftir Kenny Rogers. Ágúst Þór Brynjarsson spilaði undir á gítar. Að lokinni ræðu skólameistara og aðstoðarskólameistara Jóneyjar Jónsdóttur voru nemendur brautskráðir.
Jóney Jónsdóttir aðstoðarskólameistari FSH.
Af félagsfræðibraut brautskráðust:
Birna Íris Barkardóttir, Elín Ragnarsdóttir, Hilmar Másson, Huld Grímsdóttir, Jón Óskar Ágústsson, Jón Ásþór Sigurðarson, Kristín Kjartansdóttir og Þórdís Ása Guðmundsdóttir.
Af náttúrufræðibraut: Aðalsteinn Þórðarson, Ásgeir Sigurgeirsson, Brynjar Örn Arnarson, Halldóra Björg Þorvaldsdóttir sem lauk stúdentsprófi með flestar einingar, Hrefna Jónsdóttir og Jana Björg Róbertsdóttir.
Ruth Guðnýjardóttir útskrifaðist af starfsbraut.
Helga Björg Sigurðardóttir lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla og tók við skírteini sínu.
Veittar voru eftirfarandi viðurkenningar:
Viðurkenningu fyrir félagsstörf hlaut Birna Íris Barkardóttir frá Lyfju á Húsavík en Birna Íris sat í stjórn nemendafélags FSH í einn vetur.
Viðurkenningu fyrir félagsstörf hlaut einnig Halldóra Björg Þorvaldsdóttir frá Sparisjóði Suður-Þingeyinga en Halldóra Björg sat einnig einn vetur í stjórn nemendafélagsins.
Viðurkenningu fyrir félagsstörf hlaut ennfremur Jana Björg Róbertsdóttir frá Tómstunda- og æskulýðssviði Norðurþings en Jana Björg sat einnig einn vetur í stjórn nemendafélagsins.
Birna Íris Barkardóttir, Halldóra Björg Þorvaldsdóttir og Jana Björg Róbertsdóttir.
Viðurkenningu fyrir frábæra skólasókn hlaut Aðalsteinn Þórðarson frá Söginni ehf. Aðalsteinn var með 99,44% raunmætingu.
Viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í félagsgreinum hlaut Huld Grímsdóttir frá Vátryggingafélagi Íslands.
Viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í íslensku hlaut Birna Íris Barkardóttir frá Íslandsbanka.
Viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í ensku hlaut Elín Ragnarsdóttir frá Landsbankanum á Húsavík.
Viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í þýsku hlaut Hrefna Jónsdóttir frá Sendiráði Þýskalands á Íslandi.
Viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í raungreinum hlaut Halldóra Björg Þorvaldsdóttir frá Framsýn stéttarfélagi Þingeyinga.
Viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í dönsku hlaut Jana Björg Róbertsdóttir frá Sendiráði Danmerkur á Íslandi. Jana Björg fékk einnig viðurkenningu fyrir frábæran árangur í stærðfræði og eðlisfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Og síðast en ekki síst hlaut Jana Björg viðurkenningar frá Hollvinasamtökum FSH, Menningarsjóði þingeyskra kvenna og Þekkingarneti Þingeyinga fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi 9,14.
Jana Björg Róbertsdóttir var með hæstu einkunn á stúdentsprófi 9.14.
Þá flutti Birna Íris Barkardóttir ræðu fyrir hönd nýstúdenta og Heiðar Hrafn Halldórsson fyrir hönd 10 ára stúdenta. Að því loknu söng Kvennakór Húsavíkur undir stjórn Hólmfríðar Benedikstdóttur þrjú lög. Þess bera að geta að söngkonurnar allar eru stúdentar frá Framhaldsskólanum á Húsavík.
Birna Íris Barkardóttir flutti ávarp nýstúdenta.
Heiðar Hrafn Halldórsson flutti ávarp fyrir hönd 10 ára stúdenta.
Kvennakór Húsavíkur.
Skólameistari þakkaði nemendum og samstarfsfólki innilega fyrir samstarfið síðastliðin 24 ár en hún lætur af störfum við skólann 1. ágúst. Var henni þakkað með blómum og lófataki.
Hópurinn sem brautskráðist í gær ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara.
Með því að smella á myndirnar hér að ofan er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.