13 ára kom inn á og skoraði sitt fyrsta stigÍþróttir - - Lestrar 529
Völsungur náði í þrjú stig á móti KA b í kvöld og tyllti sér þar með á toppinn í 1. deild kvenna í blaki.
KA stúlkur mættu ákveðnar til leiks og þurftu heimasúlkur að hafa fyrir sigrinum í spennandi leik sem Völsungur vann 3-0.
Í hrinu tvö, kom Katla María Guðnadóttir inn á og gerði sér lítið fyrir og skoraði sitt fyrsta stig í deildinni.
Það var síðasta stig hrinunnar sem hún skoraði beint úr uppgjöf. Ekki amaleg innkoma það hjá þessum efnilega 13 ára leikmanni.
Stigahæstar Völsunga voru Tamara Kaposi-Pető með 22 stig og Heiðdís Edda Lúðvíksdóttir með 13 stig.
Til hamingju með sigurinn og áfram Völsungur!
Hér fyrir neðan er myndasyrpa sem ljósmyndari 640.is tók á leiknum og með því að smella á þær er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.