10 bekkur Borgarhólsskóla frumsýnir Jóladagatalið í dag

Nemendur 10. bekkjar Borgarhólsskóla frumsýna leikritið Jóladagatalið í Samkomuhúsinu í dag.

Forsíðumynd sem Karl Jakob Snæbjörnsson gerði.
Forsíðumynd sem Karl Jakob Snæbjörnsson gerði.

Nemendur 10. bekkjar Borgarhólsskóla frumsýna leikritið Jóladagatalið í Samkomuhúsinu í dag. 

Leikstjóri er Jóhann Kristinn Gunnarsson og höfundar verksins eru Arnlín Óladóttir, Ásmundur Vermundsson, Einar Indriðason, Ester Sigfúsdóttir & Jón Jónsson.

Það eru vandræði í jólasveinahellinum enda líður að jólum og margt um að vera. Grýla & Leppalúði eru ásamt jólasveinunum önnum kafin við að undirbúa jólin. En hvað gerist í hellinum? Leikhúsgestir fara í heimsókn í hellinn og upplifa ýmis ævintýri þessari sérkennilegu fjölskyldu.

Æfingar hafa staðið yfir að undanförnu og mikil tilhlökkun meðal nemenda. Verkefnið er liður í fjáröflun 10. bekkjar fyrir skólaferðalagi en um leið æði mikið nám; að koma fram, skapa og túlka, stýra ljósum, hanna forsíðu á leikskránni o.fl (borgarholsskoli.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744