12. feb
112 dagurinn - Heimsókn í BorgarhólsskólaAlmennt - - Lestrar 413
112 dagurinn var í gær og af því tilefni fengu nemendur Borgarhólsskóla heimsókn í morgun.
Þar voru á ferðinni Lögreglan á Húsavík og Björgunarsveitin Garðar með tæki sín og búnað sem þau sýndu nemendum skólans auk þess að svara spurningum áhugasamra nemenda.
Krakkarnir fengu að kveikja á sírenum og bláu ljósunum ásamt því að kynnast búnaði tækjanna sem þeim þótti afar spennandi.
Börnin á Leikskólanum Grænuvöllum fengu samskonar kynningu sl. föstudag.