„Ráðherra ætlar að keyra málið í gegn án samráðs við heimamenn“Almennt - - Lestrar 476
Fyrirhuguð sameining heilbrigðisstofnana á Norðurlandi var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs Norðurþings síðastliðinn fimmtudag. Fyrir fundinum lág erindi um málið frá Gunnlaugi Stefánssyni. Bæjarráð Norðurþings bókaði um málið í kjölfarið.
Bókunin er eftirfarandi:
Bæjarráð Norðurþings ítrekar andstöðu sína og harmar setningu reglugerðar heilbrigðisráðherra um sameiningu heilbrigðisstofnana á Norðurlandi. Fyrirhuguð sameining er í mikilli andstöðu við vilja íbúa á svæðinu.
Ráðherra ætlar að keyra málið í gegn án samráðs við heimamenn og án allra tilrauna til að gera íbúum grein fyrir ávinningi sameiningarinnar. Bæjarráð brýnir fyrir stjórnvöldum að hlusta á og virða vilja íbúa við setningu laga- og reglugerða. Einnig leggur bæjarráð áherslu á að samráð skuli ekki eingöngu vera í orði heldur líka á borði.
Bæjarráð bendir á að Heilbrigðisstofnun Þingeyinga hefur um árabil byggt upp sérhæfða þjónustu ólíkra byggðarlaga í Þingeyjarsýslum á víðfemu og samgöngulega erfiðu svæði. Þá hefur Dvalarheimilið Hvammur verið samrekið með Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.