Flýtilyklar
Fréttir
Á skrautfiskaveiðum í góða veðrinu

Eins og kom fram í síðasta tölublaði Skarps er eldrauða skrautfiska að finna í yltjörninni sunnan við bæinn og synda þeir hundruðum saman í torfum.
Í dag notuðu félagarnir Halldór Árni Þorgrímsson og Bjarni Dagur Vigfússon góða veðrið, hitinn um 20 gráður, til að fara þangað og reyna að veiða nokkra slíka.
Norrænir verkalýðsforingjar heimsækja Húsavík
Tæplega 70 norrænir verkalýðs-foringjar eru væntanlegir í heimsókn til Framsýnar- stéttarfélags á Húsavík í september. Fyrsti hópurinn kemur til Húsavíkur á morgun en þar er á ferðinni 38 manna hópur frá NNN í Noregi, verkalýðssambandi starfsmanna við matvælaframleiðslu.
Rostungur á Flateyjardal
Í morgun var farið í leiðangur vestur á Flateyjardal til að leita uppi rostung sem Stefán Guðmundsson varð var við þar í gær.
Farið var á Aþenu og meðal þeirra sem var með í för var Vignir Sigurólason dýralæknir þar sem talið var að rostungurinn væri bæði særður og máttfarinn.
Kærkominn sumarauki á víkinni í dag
Spáð er áframhaldandi hlýindum á Norðurlandi næstu daga en einmuna blíða var á Húsavík í dag. Hitinn í bænum fór mest í 23 gráður á Celsíus og segir á mbl.is að það sé mesti hiti sem mældist á landinu í dag. Þar er jafnframt haft eftir lögreglunni að margir hafi gripið tækifærið og spókað sig léttklæddir á götum bæjarins.

Bland í poka
Leita
Á næstunni
Nýtt á vefnum
Póstlistar
Teljari
Samtals: 608927














